Emma Hayes tekur við Bandaríkjunum (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Bandaríska kvennalandsliðið hefur staðfest yfirvofandi ráðningu á Emma Hayes sem nýjum landsliðsþjálfara eftir að keppnistímabilinu lýkur á Englandi.
Hayes, sem hefur verið við stjórnvölinn hjá Chelsea í tólf ár, verður þar með tíundi landsliðsþjálfari kvennaliðs Bandaríkjanna. Hún verður um leið launahæsti þjálfari heims í kvennafótboltanum.

Hún mun taka við stjórn á landsliðinu aðeins tveimur mánuðum fyrir Ólympíuleikana sem fara fram næsta sumar í París.
„Það er mikill heiður að fá tækifæri til að þjálfa ótrúlegasta lið fótboltasögunnar. Ég hef mjög sterkar tengingar við þetta lið og þessa þjóð, mig hefur dreymt um að taka við þessu starfi í langan tíma," sagði Hayes meðal annars eftir að hún var tilkynnt sem næsti þjálfari landsliðsins.
Hayes er ensk en hún hóf þjálfaraferilinn sinn í Bandaríkjunum og var við stjórnvölinn hjá Chicago Red Stars í tvö ár áður en hún var ráðin til Chelsea. Hún hefur unnið allt mögulegt hjá enska ofurdeildarfélaginu, nema Meistaradeild kvenna.
Chelsea tapaði úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2021 og hefur þrisvar sinnum þar að auki komist í undanúrslitin.
„Ég veit hvað þarf til þess að ná árangri í hæsta gæðaflokki."

TENGT EFNI
Emma Hayes verður sú launahæsta í heiminum

Driving the standards. ?????
— U.S. Women's National Soccer Team (@USWNT) November 14, 2023
Full Q&A with Emma Hayes » https://t.co/EqWgJJYl2c

Mynd: Getty Images