Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 15. desember 2019 06:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Jón Freyr og Tómas Leó skrifa undir hjá Haukum
Mynd: Hulda Margrét
Haukar staðfestu í gær að tveir ungir leikmenn hefðu nýlega skrifað undir samning við félagið.

Jón Freyr Eyþórsson og Tómas Leó Ásgeirsson skrifuðu undir hjá Haukum. Jón Freyr er tvítugur markvörður, hann varði mark KH í sumar. Hann er uppalinn hjá Val og spilaði með þeim upp alla yngri flokka.

Tómas Leó er 21 árs gamall og getur bæði leikið sem fremsti maður og á vængnum. Tómas er uppalinn hjá Sindra á Höfn og var meðal markahæstu manna 3. deildar á síðasta tímabili.

Haukar féllu úr Inkasso deildinni í haust og spila því í 2. deild á næsta ári.


Athugasemdir
banner