Fotbolti.net
15.12.22 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Vildi ekkert ræða mögulega endurkomu Benzema

Karim Benzema

Karim Benzema

Canon

Mynd: EPA

Frakkland mætir Argentínu í úrslitaleik HM á sunnudaginn eftir sigur liðsins gegn Marokkó í undanúrslitum í gær.

Karim Benzema var valinn í hópinn fyrir HM en hefur ekkert getað spilað vegna meiðsla. Hann var sendur aftur til Spánar og er byrjaður að æfa með Real Madrid.

Talið er að hann gæti komið inn í franska hópinn fyrir úrslitaleikinn þar sem hann er enn skráður í hópinn því enginn var valinn í hans stað.

Dider Deschamps þjálfari Frakklands var spurður á fréttamannafundi eftir leikinn hvort Benzema verði með.

„Ég vil frekar fara yfir í næstu spurningu," sagði Deschamps.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.