Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fim 16. janúar 2020 05:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ísland í dag - Stjarnan mætir Gróttu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Einn leikur er á dagskrá í Fótbolta.net mótinu í dag. Stjarnan mætir Gróttu í Kórnum í riðli 2 í A-deild keppninnar.

Stjarnan gerði jafntefli við ÍA í fyrsta leik riðilsins. Grótta sigraði svo Grindavík í fyrsta leik sínum seinna sama dag.

Bæði þessi lið breyttu í þjálfarateymum sínum eftir tímabilið 2019. Ólafur Jóhannesson er þjálfari Stjörnunnar ásamt Rúnari Páli Sigmundssyni og þá er Ágúst Gylfason þjálfari Gróttu en hann tók við af Óskari Hrafni Þorvaldssyni sem tók við Breiðablik.

2. umferð riðilsins klárast svo á laugardag með leik ÍA og Grindavíkur.

Fimmtudagur - Fótbolta.net mótið A-deild Riðill 2:
20:10 Stjarnan - Grótta (Kórinn)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner