Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 16. janúar 2022 13:51
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Stórfengleg aukaspyrna Ward-Prowse
James Ward-Prowse
James Ward-Prowse
Mynd: EPA
Enski miðjumaðurinn James Ward-Prowse er nú í öðru sæti yfir flest aukaspyrnumark í ensku úrvalsdeildinni eftir þrumufleyginn sem hann skoraði í 3-1 tapi Southampton gegn Wolves í gær.

Southampton var tveimur mörkum undir þegar tæpar sjö mínútur lifðu leiks.

Ward-Prowse stillti upp boltanum af tæplega 30 metra færi og hamraði á markið. Skotið var fast og var snúningurinn mikill, þannig að hann breytti um stefnu á leið sinni í netið.

Þetta var tólfta aukaspyrnu mark Ward-Prowse og er hann nú með næst flest mörk ásamt Thierry Henry og Gianfranco Zola. David Beckham er efstur á listanum með 18 mörk.

Hægt er að sjá aukaspyrnuna hér fyrir neðan en markið kemur á 1:01.




Athugasemdir
banner
banner