Fotbolti.net
16.01.23 - 14:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

KR fær unglingalandsliðsmann frá Fram (Staðfest)

Kominn í KR.

Kominn í KR.

Canon

Mynd: Fram

KR hefur fengið leikmann í sínar raðir því unglingalandsliðsmaðurinn Stefán Orri Hákonarson er kominn með leikheimild og má því spila með KR.

Stefán Orri, sem er miðjumaður, kemur frá Fram þar sem hann er uppalinn. Hann á að baki einn deildarleik með Fram, kom inn á undir lok leiks gegn Grindavík sumarið 2021 í Lengjudeildinni.
Hann er fæddur árið 2005 og lék seinni hluta síðasta tímabils á láni hjá KV í Lengjdueildinni.

Fyrri hluta síðasta tímabils lék hann með 2. flokki Fram og hafði á undirbúningstímabilinu komið við sögu með meistaraflokki.

Hann á að baki þrjá U17 landsleiki sem hann lék haustið 2021.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.