Fotbolti.net
16.03.23 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Ívan Breki semur við Selfoss

Ívan Breki semur við Selfoss
Canon

Mynd: Selfoss

Ívan Breki Sigurðssin skrifaði á dögunum undir þriggja ára samning við Selfoss.
Ívan er úr Landeyjunum en hann æfði og spilað með yngri flokkum KFR áður en hann gekk í raðir Selfoss.

Hann spilaði tólf leiki í deild- og bikar með Selfyssingum á síðasta tímabili en það var fyrsta tímabil hans í meistaraflokki.

Á undirbúningstímabilinu hefur hann verið í stóru hlutverki en hann hefur byrjað alla leiki nema einn í hægri bakverði.

Ívan hefur nú skrifað undir þriggja ára samning við félagið og er til mikils vænst af leikmanninum á komandi árum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.