Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 16. mars 2023 10:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ólíklegt að Chelsea nýti sér réttinn og kaupi Zakaria
Mynd: EPA
Chelsea ætlar sér ekki að nýta sér réttinn til þess að kaupa Deni Zakaria frá Juventus. Svissneski miðjumaðurinn er á láni hjá Chelsea út tímabilið.

Frá þessu greinir Florian Plettenberg hjá Sky í Þýskalandi.

Zakaria hefur einungis komið við sögu í tólf leikjum á tímabilinu og allt bendir til þess að hann snúi til baka til Juventus í sumar.

Samkvæmt Plattenberg ætlar Chelsea samt að fá inn nýjan miðjumann í sumar.

Zakaria er 26 ára og kom til Juventus frá Gladbach fyrir rúmlega ári síðan. Hann á þrjú ár eftir af samningi sínum við Juventus.
Athugasemdir
banner
banner