Leiknismenn frá Fáskrúðsfirði hafa endurheimt varnarmanninn Jesús Suarez og mun hann leika með liðinu í 1. deildinni í sumar.
Suarez er Leiknismönnum góðu kunnur því hann lék með liðinu frá 2016 til 2018 og var þá lykilmaður í liðinu. Hann hefur einnig spilað með ÍR hér á landi, en snýr nú aftur til Leiknis.
Suarez er fjölhæfur leikmaður og getur meðal annars leyst stöðu djúps miðjumanns og miðvarðar. Þrátt fyrir að spila aftarlega á vellinum er Suarez mikil ógn í vítateig andstæðinganna en hann hefur skorað tíu mörk í 56 leikjum fyrir Leikni.
Við bjóðum Suarez hjartanlega velkominn í Leikni aftur! Núna er bara verkurinn að koma honum frá Valencia á Fáskrúðsfjörð," segir í tilkynningu Leiknis sem er nýliði í 1. deildinni í sumar.
https://t.co/ZxPEtztt7L Suarez #BACK ❤️🔴
— Leiknir F. (@Leiknirfask) May 16, 2020
Athugasemdir