Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 16. maí 2021 16:40
Victor Pálsson
Xavi sagður opinn fyrir því að snúa aftur
Mynd: Getty Images
Spænska goðsögnin Xavi hefur náð flottum árangri í Katar en hann er í dag þjálfari Al Sadd þar í landi.

Xavi er nafn sem flestir knattspyrnuáhugamenn kannast við en hann gerði garðinn frægan með Barcelona.

Xavi lék yfir 500 deildarleiki með B arcelona frá 1998 til 2015 og endaði ferilinn svo einmitt hjá Al Sadd.

Nú er talað um það að Xavi sé opinn fyrir því að snúa aftur til Barcelona og taka við liðinu af Ronald Koeman.

Óvíst er hvort Koeman fái að þjálfa Barcelona áfram en gengi liðsins á tímabilinu hefur ekki verið gott.

Xavi hefur unnið bikarinn með Al Sadd bæði 2020 og 2021 sem og deildina á þessu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner