Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   þri 16. maí 2023 20:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sneri aftur eftir árs fjarveru - „Góð upplifun að prófa Aspetar"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fannar Daði Malmquist Gíslason lék sinn fyrsta leik í rúmt ár fyrir Þór í dag þegar hann kom inn á sem varamaður í 3-1 sigri liðsins gegn Leikni í Mjókurbikarnum.


Lestu um leikinn: Þór 3 -  1 Leiknir R.

Hann sleit krossband í leik gegn Kórdrengjum síðasta sumar og hefur verið í langri og strangri endurhæfingu síðan. Hann kom inn á í dag og átti stóran þátt í þriðja marki liðsins.

„Það er alltaf gaman að vinna, bara þrír leikir í Evrópu núna," sagði Fannar eftir sigurinn.

„Það var mjög gaman að koma inn á, þetta er búið að vera helvíti langur tími sem ég er búinn að missa af. Maður var klár fyrir tveimur mánuðum en þá komu smávægileg meiðsli. Þetta hefur tekið á, likamlega og andlega."

Aron Einar Gunnarsson frændi Fannars bauð honum til sín til Katar þar sem Fannar fór í endurhæfingu á Aspetar sjúkrahúsinu þar sem margir af stærstu íþróttamönnum heims hafa leitað til.

„Ég fór þangað í tvær vikur, var með góðum sjúkraþjálfurum þar. Komst í annað umhverfi, komast úr þessum kulda hér, alltaf sömu æfingarnar, bara prófa eitthvað nýtt," sagði Fannar.

„Það var góð upplifun að fara út. Gaman að sjá landið og fara á alvöru æfingar."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner