PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   lau 16. maí 2026 12:00
Brynjar Ingi Erluson
Arbeloa: Mourinho er númer eitt!
Alvaro Arbeloa væri til í að sjá Mourinho aftur hjá Real Madrid
Alvaro Arbeloa væri til í að sjá Mourinho aftur hjá Real Madrid
Mynd: EPA
Alvaro Arbeloa, bráðabirgðaþjálfari Real Madrid, segir að það myndi gleðja hann verulega ef Jose Mourinho yrði ráðinn næsti þjálfari liðsins.

Spænskir fjölmiðlar fullyrða að Mourinho verði næsti þjálfari Madrídinga, en hann mun gera tveggja ára samning við félagið.

Arbeloa tók við Real Madrid til bráðabirgða í byrjun árs eftir að Xabi Alonso var rekinn.

Andrúmsloftið í búningsklefanum undir stjórn Arbeloa hefur verið hræðilegt og var löngu vitað að hann myndi ekki á starfið til frambúðar.

Spánverjinn styður ráðninguna á Mourinho, sem hann segir vera besta þjálfara heims.

„Ég skil ekki þessar umræður um að það sé ekki hægt að stjórna ástandinu sem ríkir í búningsklefanum. Ég er ekki sammála því. Real Madrid mun taka ákvörðun um þjálfara næsta tímabils þegar forráðamenn félagsins telja það tímabært.“

„Sem leikmaður og stuðningsmaður Real Madrid þá er Mourinho númer eitt. Það var mín skoðun fyrir mánuði og er ég enn fastur á því. Hann verður alltaf einn af okkur og yrði ég ótrúlega ánægður að sjá hann snúa aftur heim á næsta tímabili,“
sagði Arbeloa.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 38 31 1 6 95 36 +59 94
2 Real Madrid 38 27 5 6 77 35 +42 86
3 Villarreal 38 22 6 10 72 46 +26 72
4 Atletico Madrid 38 21 6 11 62 44 +18 69
5 Betis 38 15 15 8 59 48 +11 60
6 Celta 38 14 12 12 53 48 +5 54
7 Getafe 38 15 6 17 32 38 -6 51
8 Vallecano 38 12 14 12 41 44 -3 50
9 Valencia 38 13 10 15 46 55 -9 49
10 Real Sociedad 38 11 13 14 59 61 -2 46
11 Espanyol 38 12 10 16 43 55 -12 46
12 Athletic 38 13 6 19 43 58 -15 45
13 Elche 38 10 13 15 49 57 -8 43
14 Alaves 38 11 10 17 44 56 -12 43
15 Sevilla 38 12 7 19 46 60 -14 43
16 Osasuna 38 11 9 18 44 50 -6 42
17 Mallorca 38 11 9 18 47 57 -10 42
18 Levante 38 11 9 18 47 61 -14 42
19 Girona 38 9 14 15 39 55 -16 41
20 Oviedo 38 6 11 21 26 60 -34 29
Slapp
banner
banner