Fotbolti.net
16.06.15 - 20:44
Gunnar Birgisson

Jörundur Áki: Þurfum að fara í alvarlega naflaskoðun

Auglýsing
Jörundur Áki segir að sínar stelpur verði að fara í naflaskoðun

Jörundur Áki segir að sínar stelpur verði að fara í naflaskoðun

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

<i>„Það bara hrundi allt hjá okkur á þessum 15.mínútna kafla og við vorum í erfiðum máli. 4-0 undir í hálfleik og leikurinn nánast búinn,\"</i> sagði Jörundur Áki Sveinsson í samtali við Fótbolta.net eftir að hans stúlkur töpuðu 1-4 fyrir ÍBV í Pepsi deild kvenna nú í kvöld. Með tapinu eru Fylkir komnar í mikla botnbaráttu í deildinni.

Dæmd voru tvö mörk af Fylki vegna rangstöðu snemma í seinni hálfleik.
„Fyrir mér voru þetta ekki rangstöðumörk, það hefði svosem breytt miklu fyrir okkur að fá þau góð og gild. En það eru dómararnir sem dæma og þeir dæmdu þau góð og gild og þar við situr.\"

Fylkir hafa átt erfitt með að skora mörk undanfarið og missa Berglindi Björg þeirra helsta markaskorara áður en langt um líður.
„Við höfum átt erfitt með að skora mörk og Berglind er að fara út en við erum að skoða þau mál og það er ekki bara Berglind sem er að fara heldur eru tvær aðrar að fara líka.\"

„Við þurfum bara að vinna í okkar málum.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.