Madison: Við hefðum getað verið aðeins rólegri
Auglýsing

Madison í leik gegn Þrótti á dögunum

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Keflavík féll úr leik í Mjólkurbikarnum þetta árið þegar liðið beið lægri hlut í uppgjöri liðanna í átta liða úrslitum í kvöld en lokatölur urðu 1-0 fyrir Stjörnunni. Madison Elise Wolfbauer leikmaður Keflavíkur var til viðtals og svaraði aðspurð um hvað hefði klikkað í kvöld.
„Í fyrri hálfleik vorum við aðeins að ströggla með þessi seinni tækiæri í teignum og vantaði aðeins upp á baráttuna. Í hálfleik þjöppuðum við okkur saman og ræddum málin. Við vorum ekki að spila illa en við bara vitum að við getum verið betri. Í seinni hálfleik vorum við svo bara óheppnar og í raun og veru dómineruðum við þær en svona er þetta bara stundum í fótboltanum.“
Varnarleikur Keflavíkur var heilt yfir með ágætum í dag en það virtist oft sem leikmenn væru að flýta sér um of í sóknarleiknum og að reyna að finna þessa úrslitasendingu of snemma.
„Já stundum undir lok svona leikja þá fer þetta í hausinn á manni. Við hefðum getað verið aðeins rólegri en þetta var blanda of taugum, því að vera með marga unga leikmenn á vellinum og hungri okkar í að vinna. Við mundum geta skoðað þetta á myndbandi, séð hvar við hefðum mátt vera þolinmóðari, fundið þessar sendingar út í breiddina og sett boltann í gegn sem er erfitt þegar þú ert í miðri hringiðu leiksins.“
Þrátt fyrir ósigurinn var Madison sátt með frammistöðu liðsins og sérstaklega í ljósi þess að stutt er síðan liðin mættust í Garðabæ þar sem Stjarnan vann nokkuð auðveldan 3-0 sigur.
„Í dag vorum við tilbúnar og við vissum að í þeim leik voru sumir hlutir óheppni og aðrir eitthvað sem við bara framkvæmdum illa. Við komum spenntar inn í þennan leik og á góðum degi þá getum við unnið þær. Ég held að þær hafi vanmetið okkur ögn í dag og við erum spenntar að mæta þeim aftur hér. “
Sagði Madison en allt viðtalið má sjá hér að ofan.