16.07.13 - 16:24
Magnús Már Einarsson
Aron Elís í Keflavík (Staðfest)

Aron Elís Árnason.

Mynd: Sigurpáll Árnason

Aron Elís Árnason.

Mynd: Sigurpáll Árnason
Keflavík hefur fengið markvörðinn Aron Elís Árnason til liðs við sig frá Reyni Sandgerði.
David Preece yfirgaf herbúðir Keflvíkinga á dögunum og hinn 19 ára gamli Bergsteinn Magnússon stóð á milli stanganna gegn Breiðabliki um helgina. Ómar Jóhannsson er að glíma við meiðsli og óvíst er með framhaldið hjá honum.

,,Aron Elís vildi færa sig frá Sandgerði og hann kemur inn í æfingahóp hjá okkur og setur smá þrýsting á Bergstein. Við þurfum síðan að sjá stöðuna á Ómari en það kemur í ljós mjög fljótlega,\" sagði Kristján Guðmundsson þjálfari Keflavíkur við Fótbolta.net í dag.
,,Beggi stóð sig vel í síðasta leik og við fínpússum vankantana og setjum hann ennþá flottari inn um helgina.\"
Hinn 21 árs gamli Aron Elís hefur verið varamarkvörður Reynis í sumar eftir að hafa verið aðalmarkvörður hjá félaginu undanfarin ár.