Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 16. júlí 2020 22:18
Ívan Guðjón Baldursson
Ási Haralds hættur hjá FH (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásmundur Haraldsson er hættur starfi sínu í þjálfarateymi FH en hann var aðstoðarþjálfari Ólafs Kristjánssonar sem hætti hjá Fimleikafélaginu til að taka við Esbjerg í Danmörku.

Guðlaugur Baldursson starfaði einnig sem aðstoðarþjálfari Ólafs og mun áfram sinna því starfi undir stjórn Eiðs Smára Guðjohnsen og Loga Ólafssonar sem eru teknir við.

„Ási hefur unnið óeigingjarnt starf fyrir FH síðastliðin ár og er félagið gríðarlega þakklátt honum fyrir hans framlag. Við þökkum Ása kærlega fyrir samstarfið og óskum honum als hins besta í framtíðinni," segir í yfirlýsingu á Facebook síðu FH.

Ásmundur hafði verið aðstoðarþjálfari FH síðan í nóvember 2017.
Athugasemdir
banner
banner
banner