Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 16. júlí 2020 12:00
Magnús Már Einarsson
Bellingham í læknisskoðun hjá Dortmund
Mynd: Getty Images
Jude Bellingham, miðjumaður Birmingham, er mættur til Þýskalands til að fara í læknisskoðun hjá Borussia Dortmund.

Dortmund er að ganga frá kaupum á Bellingham en talið er að kaupverðið hljóði upp á 26 milljónir punda.

Bellingham er nýroðinn 17 ára gamall en hann hefur vakið athygli í Championship deildinni með Birmingham.

Chelsea, Real Madrid, Bayern Munchen og Manchester United hafa einnig sýnt Bellingham áhuga en hann ákvað að velja Dortmund.

Talið er að Bellingham hafi valið Dortmund þar sem félagið hefur í gegnum tíðina gefið ungum leikmönnum stór tækifæri.
Athugasemdir
banner
banner