Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 16. júlí 2021 17:34
Victor Pálsson
Carsley að taka við U21 liðinu
Mynd: Getty Images
Lee Carsley, fyrrum leikmaður Everton, verður ráðinn þjálfari U21 landsliðs Englands á næstunni.

Frá þessu greina enskir miðlar en Carsley mun taka við af Aidy Boothroyd sem var látinn fara fyrr á þessu ári.

Enska knattspyrnusambandið hefur boðið Carsley tveggja ára samning en hann hefur stýrt U20 liði Englands síðasta árið.

Carsley mun stýra sínum fyrsta leik þann 3. september gegn Rúmeníu sem fer fram í Búkarest.

Carsley er 47 ára gamall en hann gerði garðinn frægan með Everton og írska landsliðinu sem leikmaður.
Athugasemdir
banner
banner
banner