Guðni: Leikurinn fór fram að mestu á þeirra vallarhelmingi

Guðni Eiríksson þjálfari FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðni Eiríksson þjálfari FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH gjörsigraði Grindavík/Njarðvík í lokaleik 11. umferðar Bestu deild kvenna sem fram fór í kvöld.
„Mjög góð frammistaða hjá FH liðinu" sagði Guðni Eiríksson þjálfari FH eftir sigurinn í kvöld.
„Mín sýn á leiknum er þannig að við byrjum leikinn ekki nægilega vel, erum 'soft' í öllum okkar aðgerðum og þær eru bara ofan á í baráttu, vilja, dugnaði og komast sanngjarnt 1-0 yfir og við þurfum að ná vopnum okkar á ný og það tók smá tíma"
„Það var mjög mikilvægt að fara inn í hálfleikinn 2-1 yfir. Það eiginlega gerði það að verkum að það var mikil ró yfir mannskapnum vitandi það að fara inn í seinni hálfleikinn"
„Það var alveg aðeins vindur á annað markið. Við vorum á móti vind í fyrri hálfleik og með vind í seinni hálfleik og við vissum að við gætum þrýst þeim vel neðarlega á þeirra vallarhelming og það varð raunin í seinni hálfleik"
„Leikurinn fór fram mestan hluta leiksins bara á vallarhelmingi Grindavík/Njarðvíkur og við fengum fjölmargar góðar stöður og herjuðum á þær aftur og aftur og skoruðum að endingu sex góð mörk og þau hefðu geta orðið fleiri" sagði Guðni Eiríksson þjálfari FH.
Nánar er rætt við Guðna Eiríksson þjálfara FH í spilaranum hér fyrir ofan.





