Fotbolti.net
16.07.26 - 22:31
Stefán Marteinn Ólafsson

Gylfi: Við vorum ekki samkeppnishæfar í seinni hálfleik

Auglýsing
Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík

Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

Grindavík/Njarðvík mátti þola stórt tap á heimavelli í kvöld þegar FH mættu í heimsókn á JBÓ völlinn í lokaleik 11. umferðar Bestu deild kvenna í kvöld.

Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 1 - 6 FH

„Mér fannst við byrja leikinn mjög vel, mikil orka og kraftur í okkur" sagði Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík eftir tapið í kvöld.

„Mér fannst ekkert galið að við hefðum komist yfir í þessum leik miðað við hvernig leikurinn spilaðist en eftir það þá náðu þær svolítið stjórn á leiknum og náðu að þrýsta okkur niður" 

„Mér fannst þær samt ekki vera að skapa sér nein færi þó þær hefðu verið að dútla þarna með boltann eitthvað þarna á miðjunni og nálægt okkar vítateig" 

„Svo klúðrum við á tveimur lykil augnablikum í leiknum í lok fyrri hálfleiks og þær skora, refsa fyrir bæði skiptin og komast í 2-1 og þannig var það og ég var bara heilt yfir miög ánægður með fyrri hálfleikinn miðað við þá stöðu sem að við erum í akkúrat núna" 

„Í seinni hálfleik gátum við bara ekki keppt við þær. Við vorum ekki samkeppnishæfar í seinni hálfleik og þær bara rúlluðu yfir okkur" 

„Ég held að svona hin almenni fótboltaáhugamaður sjái það alveg að það er ekkert óeðlilegt að lið eins og FH sem spilar á mikilli ákefð og er með gríðarlega breidd í sínu liði og gæði náttúrlega, eitt besta ef ekki besta lið landsins og við í því ástandi sem við erum í akkúrat núna að þá kemur þetta mér ekki mikið á óvart" Sagði Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík.

Nánar er rætt við Gylfa Tryggvason þjálfara Grindavík/Njarðvík í spilaranum hér fyrir ofan.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1FH11+2126
2Breiðablik11+1624
3Stjarnan11+921
4ÍBV11020
5Þróttur R.11-313
6Grindavík/Njarðvík11-912
7Valur11-410
8Víkingur R.11-1110
9Fram11-1310
10Þór/KA11-69
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.