Fotbolti.net
16.07.26 - 15:14
Elvar Geir Magnússon

Rodri stórkostlegur á HM - „Mættur til að vinna þetta“

Mun Rodri vinna gullboltann sem besti leikmaður HM.

Mun Rodri vinna gullboltann sem besti leikmaður HM.

Canon

Mynd: EPA

Spænski miðjumaðurinn Rodri er farinn að sýna sínar bestu hliðar eftir að hafa jafnað sig af erfiðum meiðslum. Hann var notaður sparlega á síðasta tímabili með Manchester City en hann sleit krossbönd 2024, sama ár og hann hlaut Ballon d'Or gullboltann sem besti leikmaður heims.

Á heimsmeistaramótinu hefur hann verið algjörlega stórkostlegur og tölurnar tala sínu máli. Hann hefur átt fleiri sendingar en nokkur annar leikmaður á mótinu og í raun hefur enginn átt fleiri í sögu HM á einu móti, síðan talningar hófust.

Af leikmönnum spænska landsliðsins leiðir hann í mörgum tölfræðiþáttum, þar á meðal snertingar á boltann, nákvæmni sendinga, boltinn unninn, einvígi unnin og fjöldi tæklinga. Þá hefur enginn Spánverji skapað fleiri tækifæri úr opnum leik.
Vinnur hann gullbolta HM?
Rodri er fyrirliði Spánverja og er maðurinn sem lætur hlutina virka í liðinu. Hann gerir svo sannarlega sterkt tilkall til að vinna gullboltann sem besti leikmaður HM.

„Ég er mættur hingað til að vinna HM," sagði Rodri eftir að Spánn vann Frakkland í undanúrslitum. Spánn mætir Argentínu í úrslitaleiknum á sunnudag.

„Ef einhver heldur að við séum að fara að vinna HM án þess að þjást þá er það rangt. Frakkland er besta lið í heimi en við höfum sýnt þroskamerki, við höfum vaxið inn í mótið. Við höfum þurft að sýna þolinmæði og nú stefnum við á titilinn."

Ef Spánn verður meistari þá verður Rodri, sem er 30 ára, aðeins sjöundi leikmaðurinn í sögunni til að vinna HM, EM, Meistaradeildina og Ballon d'Or. Fyrir á þeim lista eru nöfn á borð við Zinedine Zidane og Lionel Messi.
Rodri í leik gegn Belgíu.

Rodri í leik gegn Belgíu.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.