Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
   sun 16. ágúst 2020 21:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndir: Lindelöf og Fernandes hnakkrifust
Victor Lindelöf.
Victor Lindelöf.
Mynd: Getty Images
Manchester United er úr leik í Evrópudeildinni eftir tap gegn Sevilla í undanúrslitunum í Köln í Þýskalandi í kvöld.

Úrslit kvöldsins:
Evrópudeildin: Sevilla í úrslit en Man Utd í stutt sumarfrí

Staðan var jöfn þegar liðin gengu til búningsklefa. Í byrjun seinni hálfleiks sótti Man Utd stanslaust en markvörður Sevilla, Bono, var í miklum ham. Man Utd átti eftir að sjá eftir því að hafa ekki nýtt færin því Sevilla skoraði og komst yfir á 78. mínútu. Luuk de Jong skoraði þá eftir fyrirgjöf Jesus Navas.

Varnarmenn Man Utd voru sofandi í báðum mörkum og fyrir það var þeim refsað.

Bruno Fernandes og Victor Lindelöf, liðsfélagar í Man Utd, riftust af miklum krafti eftir sigurmark Sevilla.


Athugasemdir
banner
banner