Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 16. ágúst 2022 14:30
Elvar Geir Magnússon
Chelsea kaupir Cesare Casadei frá Inter
Cesare Casadei á æfingasvæðinu.
Cesare Casadei á æfingasvæðinu.
Mynd: Getty Images
Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að hinn nítján ára gamli Cesare Casadei muni fljúga til Englands á morgun, fara í læknisskoðun og ganga frá samningi við Chelsea sem er að kaupa hann frá Inter á 20 milljónir evra.

Casadei er miðjumaður og spilar fyrir U19 landslið Ítalíu.

Hann er spennandi ungur leikmaður sem er alhliða góður miðjumaður, bæði þegar kemur að varnar- og sóknarhlutanum. Honum hefur verið líkt við Nicolo Barella.

Þrátt fyrir flotta frammistöðu með yngri liðum Inter hefur hann ekki spilað mótsleik með aðalliðinu.

Hann mun mögulega hefja feril sinn hjá Chelsea með yngri liðum félagsins eða jafnvel vera lánaður, kannski aftur til Ítalíu?

Inter hefur þurft að selja leikmenn til að rétta við bókhaldið. Slóvakíski varnarmaðurinn Milan Skriniar hefur verið orðaður við PSG en franska félagið náði ekki samkomulagi við Inter og Skriniar verður væntanlega áfram hjá ítalska félaginu.
Athugasemdir
banner
banner