Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 16. september 2019 14:31
Elvar Geir Magnússon
Messi í hópnum hjá Barcelona gegn Dortmund
Lionel Messi.
Lionel Messi.
Mynd: Getty Images
Lionel Messi er í leikmannahópi Barcelona sem mætir Dortmund í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar annað kvöld.

Argentínumaðurinn hefur verið frá vegna kálfameiðsla sem hann varð fyrir á undirbúningstímabilinu.

Barcelona greindi frá því á heimasíðu sinni að Messi hefði æft með aðalliðinu í morgun og Valverde hefði talið hann vera kláran í vera í 22 manna leikdagshóp fyrir leikinn á Westfalenstadion.

Reiknað er með því að Messi verði á bekknum annað kvöld en hann spilaði síðast fyrir Katalóníuliðið í maí.
Athugasemdir
banner