„Við sýndum ekki okkar leik í síðari hálfleik, við vorum of hræddir," sagði Granit Xhaka, fyrirliði Arsenal, eftir 2-2 jafnteflið gegn Watford í gær.
Arsenal var 2-0 yfir í hálfleik en Watford átti 23 skot á markið í síðari hálfleik og uppskar jöfnunarmark að lokum.
Arsenal var 2-0 yfir í hálfleik en Watford átti 23 skot á markið í síðari hálfleik og uppskar jöfnunarmark að lokum.
„Það vili enginn fá boltann. Í lokin getum við verið ánægðir með að fá stigið."
„Öll lið í ensku úrvalsdeildinni eru nægilega sterk til að skora en þú verður að halda ró, sýna góðan karakter og vera andlega sterkur. Við vorum það ekki í dag (í gær)."
Athugasemdir