Lazio hefur fest kaup á örvfætta framherjanum Vedat Muriqi frá Fenerbahce.
Muriqi er frá Kósóvo og er hann 26 ára gamall og 194 cm hár. Hann mun væntanlega vera í samkeppni við Ciro Immobile um sæti í liði Lazio.
Muriqi er frá Kósóvo og er hann 26 ára gamall og 194 cm hár. Hann mun væntanlega vera í samkeppni við Ciro Immobile um sæti í liði Lazio.
Muriqi kostar Lazio um 20 milljónir evra og skrifar hann undir fimm ára samning við ítalska félagið.
Muriqi skoraði fimmtán mörk í 32 deildarleikjum á síðustu leiktíð. Hann á að baki 23 landsleiki og í þeim hefur hann skorað átta mörk.
✍🏻 Benvenuto sulla nostra nave, pirata! #WelcomeVedat 🤝 pic.twitter.com/0hA0XCBoCm
— S.S.Lazio (@OfficialSSLazio) September 15, 2020
Athugasemdir