Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mið 16. september 2020 20:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Messi skoraði gull af marki í æfingaleik - Coutinho á skotskónum
Mynd: Getty Images
Barcelona lék í dag æfingaleik gegn Girona. Leikurinn er liður i undirbúningi liðanna fyrir komandi deildarkeppni.

Girona komst í úrslitaleik umspilsins um sæti í efstu deild nú í ágúst en tapaði gegn Elche og leikur því áfram í næstefstu deild. Fyrstu umferð var frestað hjá Barcelona í La Liga þar sem liðið lék í Meistaradeildinni í ágúst.

Phlippe Coutinho skoraði fyrsta mark leiksins á 21. mínútu. Coutinho skoraði gegn Barcelona í ágúst en hann var að láni hjá Bayern Munchen. Lionel Messi skoraði á 45. mínútu áður en Girona minnkaði muninn. Á 51. mínútu bætti Messi við öðru marki og þar við sat, 3-1.

Fyrra mark Messi var af dýrari gerðinni eins og sjá má hér að neðan. Juan Carlos í marki Girona hreyfðist ekki þegar Messi smellti boltanum í stöngina og inn með hægri fæti fyrir utan teig. Gary Lineker, fyrrum framherji Barcelona, vekur athygli á markinu og skrifar: „Bara ef Messi væri ekki svona einfættur" og er þar að grínast þar sem Messi er örvfættur. Markið má sjá hér að neðan.

Framtíð Messi var mikið í umræðunni nú í sumar og samband hans og Ronald Koeman af einhvejrum talið stirt. Þegar Messi var tekinn af velli þá tókust hann og Koeman í hendur.


Athugasemdir
banner
banner
banner