Valdimar Þór Ingimundarsson er búinn að semja við norska félagið Strömsgodset um að ganga í raðir félagsins.
Valdimar kemur frá Fylki og er Árbæjarliðið að missa sinn besta leikmann og „frábæran fótboltamann" eins og Ólafur Ingi Stígsson sagði í viðtali eftir síðasta deildarleik. Viðtal við Óla má hlusta á hér neðst í fréttinni ásamt viðtali við Valdimar frá því á sunnudaginn.

Það er norska félagið sem staðfestir skiptin með færslu sinni á Twitter fyrr í kvöld. Valdimar verður í treyju númer 23 hjá félaginu og skrifar undir þriggja ára samning.
Næsti leikur Strömsgodset er gegn Sandefjord um helgina. Strömsgodset er í 12. sæti Eliteserien, efstu deildar í Noregi.
Now it is official: Valdimar Ingimundarson (1999) has signed for Stromsgodset in Norway. Been fantastic for Fylki in Iceland. Congrats 🇮🇸📄🖋✔️⭐️👌 pic.twitter.com/rbh5VFocMp
— Magnus Agnar Magnusson (@totalfl) September 16, 2020
✍🏼 Velkominn í Strømsgodset, @ingimundars 🇮🇸 pic.twitter.com/FqxuJwgAcL
— Strømsgodset Fotball (@strmsgodset) September 16, 2020
Athugasemdir