Skrifar undir sjö ára samning
Watford er búið að selja vinstri bakvörðinn Pervis Estupinan til spænska félagsins Villarreal.
Estupinan, sem er 22 ára gamall, gekk í raðir Watford fyrir fjórum árum en fékk ekki tækifæri með aðalliðinu.
Fyrstu þrjú árin var hann lánaður til Granada, Almeria og Mallorca þar til í fyrra þegar hann fór til Osasuna, í efstu deild.
Hjá Osasuna vann hann sér inn byrjunarliðssæti og stóð sig vel. Hann hreif marga á Spáni og þess vegna greiðir Villarreal 15 milljónir evra fyrir þennan landsliðsmann Ekvador.
Estupinan skrifar undir langtímasamning við Villarreal sem rennur ekki út fyrr en sumarið 2027.
¡El Villarreal ficha al defensa @PervisEstupinan 🇪🇨 para las próximas siete temporadas!
— Villarreal CF (@VillarrealCF) September 16, 2020
¡Bienvenido al Submarino 👏!
👉 https://t.co/jQ5t0CjRbY pic.twitter.com/bdXunhSbSq
Athugasemdir