Fotbolti.net
16.09.21 - 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Djair horfinn á braut

Djair Parfitt-Williams.

Djair Parfitt-Williams.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, sagði frá því í viðtali eftir bikartap gegn Víkingi í gær að kantmaðurinn Djair Parfitt-Williams væri horfinn á braut.
Djair hefur verið mikið frá í sumar vegna meiðsla og miðað við orð Rúnars, þá mun hann ekki spila aftur fyrir Fylki.

Djair, sem er 24 ára, kom hingað til lands fyrir síðustu leiktíð. Hann var í akademíu West Ham á Englandi og var í kringum aðalliðið áður en hann yfirgaf félagið 2017. Hann spilaði í Slóveníu áður en hann gekk í raðir Fylkis fyrir sumarið 2020.

Á fyrsta tímabilinu á Íslandi skoraði hann tvö mörk í 18 leikjum í Pepsi Max-deildinni. Í sumar skoraði hann fimm mörk í 13 deildarleikjum.

„Djair er horfinn á braut," sagði Rúnar í viðtalinu sem má sjá hér að neðan.

Rúnar Páll: Snýst núna bara um leikinn mikilvæga á sunnudag

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.