Kári 4-0 Víðir
1-0 Kolbeinn Tumi Sveinsson ('9 )
2-0 Kolbeinn Tumi Sveinsson ('31 )
3-0 Andri Júlíusson ('38 )
4-0 Fylkir Jóhannsson ('80 )
Kári og Víðir áttust við í fyrsta leik lokaumferðarinnar í 3. deildinni í kvöld. Tímabilinu lýkur á morgun þar sem restin af leikjunum hefst kl 14.
Kári kláraði leikinn strax í fyrri hálfleik þar sem liðið var 3-0 yfir en Fylkir Jóhannsson bætti fjórða markinu við undir lok leiksins.
Kári fór því með 4-0 sigur af hólmi og komst nær Víði í töflunni. Víðir endaði í 4. sæti með 35 stig en Kári í 5. sæti með 34 stig.
Víðir fór illa að ráði sínu undir lok tímabilsins þar sem liðið tapaði síðustu fjórum leikjunum.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir