Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
   fös 16. október 2020 18:46
Elvar Geir Magnússon
Benrahma til West Ham (Staðfest)
West Ham hefur tilkynnt um félagaskipti Alsíringsins Said Benrahma.

Þessi 25 ára leikmaður kemur til West Ham á láni út tímabilið en West Ham er skuldbundið til að kaupa hann eftir tímabil.

West Ham borgar Brentford 5 milljónir punda fyrir lánið en þarf svo að kaupa leikmanninn á um 20 milljónir punda eftir tímablið.

Benrahma skoraði 30 mörk og átti 27 stoðsendingar á tveimur árum hjá Brentford.

Skipti hans til West Ham voru í hættu eftir að einhver vandræði komu upp í læknisskoðun en það tókst að leysa úr því.


Slapp
banner
banner