Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fös 16. október 2020 11:37
Elvar Geir Magnússon
Borini aftur til Swansea?
Swansea er í viðræðum við Fabio Borini en hann er samningslaus.

Borini er 29 ára sóknarleikmaður, fyrrum leikmaður Liverpool og AC Milan.

Borini á einn landsleik fyrir Ítalíu en hann lék með Swansea og hjálpaði liðinu að komast upp í ensku úrvalsdeildina þegar hann var hjá því á lánssamningi 2010-11.

Þar sem Borini er á frjálsri sölu þarf Swansea ekki að ganga frá kaupunum áður en glugganum lokar í dag.
Athugasemdir