Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 16. október 2020 13:00
Magnús Már Einarsson
Liverpool lánar Woodburn til Blackpool (Staðfest)
Ben Woodburn
Ben Woodburn
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur lánað miðjumanninn Ben Woodburn til Blackpool í ensku C-deildinni. Hinn 21 árs gamli Woodburn varð árið 2016 yngsti markaskorari í sögu Liverpool þegar hann skoraði gegn Leeds í deildabikarnum.

Woodburn hefur ekki náð að fylgja því eftir en meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá honum

Woodburn, sem á tíu landsleiki að baki með Wales, var á láni hjá Oxford í C-deildinni á síðasta tímabili og hann fer nú aftur í sömu deild á láni.

Neil Critchley, sem var í þjálfarateymi Liverpool, er stjóri Blackpool og hann þekkir Woodburn vel.

Blackpool keypti Daníel Leó Grétarsson frá Álasund á dögunum en hann gæti spilað sinn fyrsta leik með liðinu gegn Crewe á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner