Fotbolti.net
16.10.20 - 09:17
Elvar Geir Magnússon

Maguire gæti misst af leiknum gegn Newcastle

Solskjær kemur fyrirliðanum til varnar

Harry Maguire.

Harry Maguire.

Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn umtalaði Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, gæti misst af leik gegn Newcastle á laugardagskvöld.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, tilkynnti þetta á fréttamannafundi nú í morgunsárið.

Solskjær segir að hann hafi fengið högg rétt áður en hann var rekinn af velli í landsleik Englands gegn Danmörku,
Maguire hefur hlotið mikla gagnrýni en hann hefur farið mjög illa af stað á tímabilinu.

„Í fótboltanum ertu sífellt í sviðsljósinu og þegar Harry er hluti af liði sem vinnur Belgíu, efsta lið heimslistans, er litið á það sem venjulegan dag. En hann fær fyrirsagnirnar þegar hann er rekinn af velli. Svona er boltinn, það eru hæðir og lægðir og hann þarf að sætta sig við það," segir Solskjær.

„Harry er með mikla seiglu og veit að hann mun svara þessu. Hann vill spila og fá fólk til að gleyma síðustu leikjum. Hann hefur verið gagnrýndur, hann fékk högg rétt áður en hann fékk rauða spjaldið og við munum skoða hann í dag."

Solskjær segir að United hópurinn standi saman við bakið á Maguire og utanaðkomandi tilraunir til að reyna að skapa ólgu hafi ekki áhrif.

United hefur tapað tveimur af þremur síðustu leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni en liðið var niðurlægt 6-1 gegn Tottenham rétt fyrir landsleikjagluggann.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.