Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 16. október 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Fjórir ungir framlengja við Þór
Bjarni Sigurðsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs, er hér ásamt leikmönnunum fjórum
Bjarni Sigurðsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs, er hér ásamt leikmönnunum fjórum
Mynd: Knattspyrnudeild Þórs
Penninn er á lofti á Akureyri en Þór framlengdi samninga við fjóra unga leikmenn félagsins í gær.

Auðunn Ingi Valtýsson, Bjarni Guðjón Brynjólfsson, Hermann Helgi Rúnarsson og Birgir Ómar Hlynsson framlengdu allir samninga sína við félagið.

Auðunn er 19 ára gamall markvörður sem á að baki fjóra leiki í deild- og bikar með Þór.

Bjarni Guðjón er 17 ára gamall og þrátt fyrir ungan aldur hefur hann spilað 21 leik í deild- og bikar og gert fimm mörk. Öll fimm mörkin komu í sumar í Lengjudeildinni.

Hermann Helgi er 21 árs gamall og er reyndastur af þessum fjórum en hann á 61 leik að baki. Hann á þá þrjá leiki fyrir U16 ára landslið Íslands.

Birgir Ómar er tvítugur og hefur spilað 21 leik og gert eitt mark fyrir félagið.
Athugasemdir
banner
banner