Arnór Ingvi: Um leið og ég sá sendinguna vissi ég að Gylfi væri að fara að setja hann
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arnór Ingvi Traustason var sáttur eftir 4-0 sigur Íslands gegn Liechtenstein í kvöld og talaði um að íslenska liðið hefði klárað verkefnið á fagmannlegan hátt.
„Mér fannst flæðið vera gott og þeir náðu ekki að halda í við okkur. Við náðum að klára færin okkar," sagði Arnór.

Lestu um leikinn: Ísland 4 - 0 Liechtenstein
Leikmenn Liechtenstein lágu mikið í grasinu og voru að tefja þó staðan væri orðin 3-0 og 4-0.
„Það er hægt að segja margt um það en við þurftum að halda haus og vera faglegir. Þetta tók stundum á."
Arnór átti þátt í þremur mörkum í kvöld og lagði upp eitt.
„Ég fékk að vera aðeins framar á vellinum og gera eitthvað smá," sagði Arnór sem átti sendinguna á Gylfa Þór Sigurðsson þegar hann bætti markametið.
„Það var mjög gaman. Um leið og ég sá sendinguna þá vissi ég að hann væri að fara að setja hann."