Nik búinn að láta vita að hann taki við Breiðabliki

Nik Chamberlain.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Nik Chamberlain.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Nik Chamberlain hefur tilkynnt stjórn Þróttar það að hann ætli að láta af störfum hjá félaginu og taka við Breiðabliki. Þetta herma heimildir Fótbolta.net.
Nik hefur verið orðaður við starfið hjá Breiðabliki eftir að Ásmundur Arnarsson var rekinn fyrir nokkrum vikum síðan.
Eftir síðasta deildarleik tímabilsins sagði Nik:
„Eins og staðan er núna, þá verð ég áfram hjá Þrótti. Ef það er áhugi þá mun það koma í ljós, það er gott að vera orðaður við Breiðablik, þau hafa náð góðum árangri."
Núna er staðan þannig að hann er að fara að taka við Breiðabliki en það ríkir svekkelsi í Laugardalnum með þessa ákvörðun.
Nik hefur stýrt Þrótti frá 2016 og náð virkilega flottum árangri með liðið. Hann kom liðinu upp úr 1. deild og undir hans stjórn hefur Þróttur náð að festa sig í sessi í efri hluta Bestu deildarinnar.
Breiðablik hafnaði í öðru sæti Bestu deildarinnar á nýliðnu tímabil og leikur í Meistaradeildinni næsta sumar.