Stjórn Man Utd kýs um tilboð Ratcliffe

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Stjórn Manchester United mun kjósa um tilboð Sir Jim Ratcliffe sem hefur boðið um 1,3 mlljarða punda í 25% hlut í félaginu. Kosningin mun væntanlega fara fram á næstu dögum.
Ratcliffe, sem er einn ríkasti einstaklingur Bretlandseyja, er mjög bjartsýnn á að tilboði sínu verði tekið.

Ratcliffe vill fá stjórn á fótboltamálum félagsins og framtíð Erik ten Hag yrði þá í hans höndum.
Glazer systkinin sex eru meirihlutaeigendur og munu kjósa um tilboð Ratcliffe. Ef það verður samþykkt mun það bara vera formsatriði að ganga frá málum.
Ratcliffe er sá eini sem er í viðræðum um eignarhlut í Manchester United eftir að Sjeik Jassim bin Hamad al-Thani frá Katar gafst upp á að reyna að kaupa félagið 100% og ákvað að draga tilboð sitt til baka.

Heimild: Guardian