Tveir sænskir stuðningsmenn skotnir til bana í Brussel - Leikurinn stöðvaður

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Tveir stuðningsmenn sænska landsliðsins voru skotnir til bana í Brussel í Belgíu í dag, en Aftonbladet og Expressen greina frá.
Belgía og Svíþjóð eigast við í undankeppni Evrópumótsins á King Baudoin-leikvanginum í Brussel.
Sænsku miðlarnir Aftonbladet og Expressen greina nú frá því að tveir stuðningsmenn sænska landsliðsins voru skotnir til bana í borginni.
Nokkrir aðrir særðust í árásinni, en árásarmaðurinn er sagður styðja hryðjuverkasamtökin Ríki Íslams.
Belgía og Svíþjóð spiluðu fyrri hálfleikinn og var staðan 1-1 áður en það var tekin ákvörðun um að spila ekki síðari hálfleikinn vegna árásarinnar.
Belgísku leikmennirnir samþykktu þessa ákvörðun Svía um að spila ekki síðari hálfleikinn, en óljóst er hvenær hálfleikurinn verður spilaður.