Granit Xhaka hefur ekkert spilað með Arsenal eftir að hafa gengið af velli og svarað stuðningsmönnum félagsins sem bauluðu á hann í leik gegn Crystal Palace í október.
Xhaka missti í kjölfarið fyrirliðabandið hjá félaginu og hefur ekki verið í hóp síðan.
Xhaka missti í kjölfarið fyrirliðabandið hjá félaginu og hefur ekki verið í hóp síðan.
Xhaka lék með svissneska landsliðinu í gærkvöldi í sigri liðsins á Georgíu. Xhaka birti í kjölfarið færslu á Instagram þar sem hann virðist skjóta á stuðningsmenn Arsenal og þeirra gagnrýni í hans garð.
„Hamingjan felst í því að vera ánægður með sjálfan þig og að þurfa ekki á staðfestingu annarra að halda."
Athugasemdir