Fotbolti.net
16.11.20 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Aubameyang og félagar gistu á gólfinu á flugvellinum

Aubameyang og félagar gistu á gólfinu á flugvellinum
Canon

Mynd: Getty Images

Pierre-Emerick Aubameyang og liðsfélagar hans í landsliði Gabon neyddust til að sofa á gólfinu á flugvellinum í Gambíu í nótt.

Gabon er að fara að mæta Gambíu í leik í undankeppninni í Afríkukeppninni.

Við komuna til Gambíu fékk lið Gabon þau skilaboð að það mætti ekki yfirgefa flugvöllinn vegna pappírsvandamála.
Leikmenn sváfu því á gólfinu á flugvellinum áður en þeir fengu að fara inn í landið í morgun.

„Það er 2020 og við viljum að Afríka vaxi. Þetta er ekki leiðin í áttina að því," sagði Aubameyang.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.