fös 17. janúar 2020 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland um helgina - Þétt dagskrá og landsleikur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er heill aragrúi af leikjum framundan á íslenska undirbúningstímabilinu þar sem fjögur mót eru í gangi á sama tíma.

Fótbolta.net mótið er í fullum gangi þar sem aðeins er leikið í karlaflokki. Á móti vegur að Faxaflóamótið er aðeins leikið í kvennaflokki og svo eru einnig leikir í Reykjavíkurmótinu og Kjarnafæðismótinu, þar sem leikið er bæði í karla- og kvennaflokki.

Það er mikð af áhugaverðum leikjum á dagskrá yfir helgina en í dag er til dæmis hægt að fylgjast með viðureign HK og FH í Kórnum klukkan 19:00 eða spennandi Reykjavíkurslag kvennaliða Þróttar R. og KR á sama tíma í Egilshöllinni.

Á laugardaginn á Valur leik við Víking R. í Reykjavíkurmótinu áður en Fram mætir Leikni R.

Á sunnudaginn eigast Fylkir og Fjölnir við í Reykjavíkurmótinu og á íslenska landsliðið æfingaleik við El Salvador á miðnætti. Liðin mætast í Kaliforníu, en Ísland hafði betur gegn Kanada fyrir helgi.

Föstudagur:
Fótbolti.net mótið, A-deild:
Riðill 1:
19:00 HK - FH (Kórinn)

Fótbolti.net mótið, B-deild:
Riðill 1:
18:15 Afturelding - Selfoss (Varmárvöllur - gervigras)

Riðill 2:
19:00 Vestri - Haukar (Skessan)

Reykjavíkurmót kvenna, A-riðill:
19:00 Þróttur R. - KR (Egilshöll)
21:00 Víkingur R. - Fylkir (Egilshöll)

Faxaflóamótið, B-riðill:
19:00 ÍA - Augnablik (Akraneshöllin)

Kjarnafæðismótið, B-deild:
21:15 KF - Höttur/Huginn (Boginn)



Laugardagur:
Fótbolti.net mótið, A-deild:
Riðill 1:
12:00 Breiðablik - ÍBV (Kópavogsvöllur)

Riðill 2:
11:15 ÍA - Grindavík (Akraneshöllin)

Fótbolti.net mótið, C-deild:
Riðill 2:
13:00 Kórdrengir - Augnablik (Framvöllur)

Reykjavíkurmót karla, B-riðill:
15:15 Valur - Víkingur R. (Egilshöll)
17:15 Fram - Leiknir R. (Egilshöll)

Faxaflóamótið, A-riðill:
11:15 Selfoss - FH (Skessan)

Faxaflóamótið, B-riðill:
14:00 Grótta - ÍBV (Vivaldivöllurinn)

Kjarnafæðismótið, A-deild:
13:00 KA 2 - Völsungur (Húsavíkurvöllur)
15:15 KA - Leiknir F. (Boginn)

Kjarnafæðismót kvenna:
17:15 Fjarðab/Höttur/Leiknir - Tindastóll (Boginn)



Sunnudagur:
A-landslið karla:
00:00 El Salvador - Ísland (Dignity Health Sports Park)

Fótbolti.net mótið, B-deild:
Riðill 1:
12:00 Víkingur Ó. - Njarðvík (Akraneshöllin)

Riðill 2:
13:00 Vestri - Þróttur V. (Skessan)

Reykjavíkurmót karla, A-riðill:
17:15 Fylkir - Fjölnir (Egilshöll)
19:15 KR - Þróttur R. (Egilshöll)

Reykjavíkurmót kvenna, A-riðill:
15:15 Fjölnir - Valur (Egilshöll)

Faxaflóamótið, A-riðill:
17:00 Haukar - Keflavík (Ásvellir)

Faxaflóamótið, B-riðill:
16:00 HK - Afturelding (Kórinn)

Kjarnafæðismótið, B-deild:
17:15 Samherjar - Kormákur/Hvöt (Boginn)

Kjarnafæðismót kvenna:
15:15 Þór/KA - Hamrarnir (Boginn)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner