Tanguy Ndombele var besti leikmaður vallarins er Tottenham lagði botnlið Sheffield United að velli í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Ndombele fær 8 í einkunn frá Sky Sports, rétt eins og liðsfélagi sinn Harry Kane. Báðir skoruðu þeir í leiknum en mark Ndombele var stórglæsilegt og úr afar erfiðu færi.
Steven Bergwijn, sem gaf stoðsendinguna á Ndombele, var versti leikmaður Tottenham í dag með 6 í einkunn.
Oliver Norwood var versti maður vallarins með 4 í einkunn. John Egan og John Lundstram fengu 5 rétt eins og varamennirnir Billy Sharp og Rhian Brewster.
David McGoldrick var besti leikmaður Sheffield með 7 í einkunn enda skoraði hann eina mark liðsins með skalla eftir fyrirgjöf frá John Fleck.
Sheffield Utd: Ramsdale (6), Basham (6), Egan (5), Ampadu (6), Bogle (5), Lundstram (5), Norwood (4), Fleck (6), Stevens (6), Burke (6), McGoldrick (7).
Varamenn: Sharp (5), Brewster (5), Bryan (6).
Tottenham: Lloris (7), Aurier (7), Rodon (7), Dier (7), Davies (7), Bergwijn (6), Hojbjerg (7), Ndombele (8), Reguilon (7), Son (7), Kane (8).
Athugasemdir