Fotbolti.net
17.01.23 - 19:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sarabia genginn til liðs við Wolves (Staðfest)

Sarabia genginn til liðs við Wolves (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Pablo Sarabia er genginn til liðs við Wolves frá PSG en hann gerir tveggja og hálfs árs samning við félagið. Wolves kaupir hann fyrir 4.4 milljónir punda.

Þessi þrítugi Spánverji er mættur til Englands og á Molineaux völlinn þar sem hann mun fylgjast með nýju samherjum sínum mæta Liverpool í endurteknum leik í enska bikarnum.

Sarabia var á láni hjá Sporting í Portúgal á síðustu leiktíð þar sem hann spilaði 29 leiki og skoraði 15 mörk.

Hann hefur leikið 26 landsleiki fyrir Spán

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.