Kylian Mbappe og félagar í PSG heimsóttu Barcelona í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi.
Hinn ungi Mbappe gerði sér lítið fyrir og gjörsamlega jarðaði Börsunga í leiknum þar sem hann setti þrennu í 1-4 sigri.
Mauricio Pochettino, þjálfari PSG, var hæstánægður með sinn mann að leikslokum og sagði stutta dæmisögu til að lýsa hugarfari heimsmeistarans.
„Degi fyrir leik spurði Kylian mig á miðri æfingu hversu oft ég hefði unnið fótboltaleik á Nývangi. Ég sagðist aðeins hafa unnið einu sinni og þá sagði hann: 'Á morgun muntu vinna þar í annað sinn'," sagði Pochettino.
„Hann er toppleikmaður."
Athugasemdir