Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   þri 17. febrúar 2026 11:30
Kári Snorrason
Bayern ætlar ekki að halda Jackson
Nicolas Jackson er 24 ára.
Nicolas Jackson er 24 ára.
Mynd: EPA
Bayern Munchen ætlar sér ekki nýta kaupákvæði í lánssamningi senegalska framherjans Nicolas Jackson og mun hann því að öllum líkindum snúa aftur til Lundúna í Chelsea á næsta tímabili.

Times greinir frá og segir í umfjöllun þeirra að hann hafi ekki náð þeim leikjafjölda sem þarf til að FC Bayern München geti virkjað ákvæði um skyldukaup í samningi hans.

Jackson þurfti að leika 40 leiki og spila að lágmarki 45 mínútur í hverjum þeirra.

Hingað til hefur hann aðeins leikið 22 leiki fyrir Bayern og náð lágmarks mínútufjölda í sjö þeirra. Hann hefur skorað fimm mörk á tímabilinu.

Senegalinn þarf þó ekki að örvænta varðandi samningsmál en hann er samningsbundinn Chelsea til ársins 2033.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 25 21 3 1 92 24 +68 66
2 Dortmund 25 16 7 2 53 26 +27 55
3 Hoffenheim 25 15 4 6 53 33 +20 49
4 Stuttgart 25 14 5 6 50 34 +16 47
5 RB Leipzig 25 14 5 6 48 34 +14 47
6 Leverkusen 25 13 5 7 48 32 +16 44
7 Frankfurt 25 9 8 8 48 49 -1 35
8 Freiburg 25 9 7 9 37 42 -5 34
9 Augsburg 25 9 4 12 31 43 -12 31
10 Hamburger 25 7 8 10 28 36 -8 29
11 Union Berlin 25 7 7 11 30 42 -12 28
12 Gladbach 25 6 7 12 28 43 -15 25
13 Werder 25 6 7 12 29 45 -16 25
14 Köln 25 6 6 13 34 43 -9 24
15 Mainz 25 5 9 11 29 41 -12 24
16 St. Pauli 25 6 6 13 23 40 -17 24
17 Wolfsburg 25 5 5 15 34 55 -21 20
18 Heidenheim 25 3 5 17 24 57 -33 14
Athugasemdir
banner