Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 17. mars 2023 17:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Albert Brynjar fyllir í eyðurnar: Tekinn fyrir á fundi fyrir framan liðið
Icelandair
Albert Guðmundsson.
Albert Guðmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Albert Brynjar er frændi Alberts.
Albert Brynjar er frændi Alberts.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Albert er ekki í landsliðshópnum.
Albert er ekki í landsliðshópnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari.
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á landsliðsæfingu.
Á landsliðsæfingu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Albert faðmar föður sinn, Guðmund Benediktsson.
Albert faðmar föður sinn, Guðmund Benediktsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Albert Brynjar tjáir sig um málið.
Albert Brynjar tjáir sig um málið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Albert er leikmaður Genoa á Ítalíu.
Albert er leikmaður Genoa á Ítalíu.
Mynd: Getty Images
Það hefur mikil umræða skapast eftir að Albert Guðmundsson var ekki valinn í íslenska landsliðshópinn fyrir fyrstu leikina í undankeppni EM 2024.

Albert hefur ekkert viljað tjá sig við fjölmiðla um málið en faðir hans, Guðmundur Benediktsson, sendi frá sér yfirlýsingu fyrr í dag þar sem hann gagnrýnir Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfara, harðlega.

Sjá einnig:
Tími Alberts í landsliðinu: Átti að taka við keflinu en er núna ekki í hóp

Eins og mikið hefur verið fjallað um þá andar köldu milli Arnars og Alberts en í viðtölum í gær sagði Arnar að Albert hefði gert kröfu á byrjunarliðssæti.

Albert Brynjar Ingason, frændi Alberts, var í Dr Football hlaðvarpinu í dag og fór þar yfir atburðarásina, hvað hefði gerst á síðustu mánuðum. Hann er greinilega búinn að vera í samskiptum við frænda sinn og sagði frá mörgu í þættinum sem telst svo sannarlega áhugavert - hlutum sem ekki hafa áður komið fram.

„Hingað til hefur hlið Arnars bara verið í umræðunni þannig að ég ætla að fara yfir þessa atburðarás og eigna mér míkrafóninn núna. Það er komið að þolmörkum hjá mér," sagði Albert Brynjar í þættinum.

Byrjaði síðasta sumar
Hann segir að þetta hafi byrjaði í verkefninu síðasta sumar þar sem Albert kom lítið við sögu. Þá hafi hann verið tekinn fyrir af þjálfurunum á myndbandsfundi.

„Þeir taka Albert fyrir, eru að drulla yfir hann að fara inn á völlinn sem kantari. Þeir sem fylgjast með Alberti með félagsliðum vita að hann gerir það, hann vill fara inn á miðsvæðið. Í kjölfarið fer Albert á fund með þjálfurunum og segist vilja fá tækifæri miðsvæðið þar sem honum finnst hæfileikar sínir nýtast best þar. Svörin sem hann fær eru hart nei og hann líti of stórt á sig, hann sé of góður með sig. Þarna fer þjálfarinn í persónuna, ekki leikmanninn. Þetta eru ekki góð samskipti milli þjálfara og leikmanns."

Í kjölfarið var æfing þar sem Albert var pirraður og með hangandi haus. „Hann tekur það alveg á sig. Þjálfarinn tekur upp þessa æfingu og boðar fund eftir hana þar sem hann er búinn að klippa til Albert. Hann spyr svo yfir hópinn hvort einhver sjái eftir þessari æfingu. Þá tekur hann Albert fyrir. Albert spilar svo ekkert gegn Albaníu og tvær mínútur gegn Ísrael. Eftir þann leik er Albert pirraður og yfirgefur liðið fljótlega eftir að leikurinn er búinn."

Albert var ekki valinn í hópinn í september og sagði Arnar þá að hann væri ósáttur við hugarfarið hjá leikmanninum.

Arnar er svo spurður út í rifrildin og segir það ekki satt... svo fóru menn heim eftir þetta verkefni. Svo liðu mánuðir. Ef þjálfari er ósáttur við leikmanninn og maður heldur að hann myndi þá ræða við leikmanninn á milli fyrir næsta verkefni. Svo kemur það út að Albert sé ekki í hóp án þess að Albert væri búinn að heyra í þjálfaranum sem var ósáttur við hann. Nokkrum tímum áður en hópurinn er kynntur hringir Arnar og segir Alberti þetta, að hann sé ósáttur við hugarfarið."

„Hann endar símtalið á að segja við Albert að hann ætti að hringja í hann og láta vita ef hann myndi gefa kost á sér. Hann er að reyna að búa til stöðu þar sem hann þarf ekki að velja hann. Albert segir: 'Nei, ég þarf þess ekki því ég gef alltaf kost á mér og þú veist það'."

„Hugarfarið hjá Alberti er að reyna að finna lendingu sem myndi nýtast liðinu vel og vera svo ósáttur við að spila lítið. Arnar hendir út hugarfari og segir svo ekkert meira því það væri ekki faglegt. En að setja út á hugarfar atvinnumanns og láta fólk fylla upp í eyðurnar. Er það faglegt?"

Virtist vera skilningur á því frá þjálfaranum
Albert er búinn að spila mjög vel með Genoa á Ítalíu upp á síðkastið, en Arnar hringdi í hann fyrir verkefnið núna og áttu þeir samtal. Í kjölfarið fer Arnar í viðtal við Fótbolta.net í gær þar sem hann segir: „Ég get sem þjálfari ekki valið leikmenn sem eru ekki tilbúnir að koma inn nema þeir muni byrja leikina. Það er ein af forsendunum."

Albert Brynjar sagði frá þessu umtalaða símtali í þættinum.

„Í kjölfarið spilar Arnar virkilega vel með Genoa. Hvað gerir Arnar þá til að koma í veg fyrir að hann þurfi að velja hann? Hann segir að Albert verði að hringja í sig, vitandi að Albert var búinn að segja að hann þyrfti ekki að hringja því hann gæfi alltaf kost á sér. Umræðan var mikil og Arnar hringir í Albert. Hann opnar símtalið á að segjast vera svekktur út í hann fyrir að hafa ekki hringt. Þeir ræða svo þetta komandi verkefni."

„Albert spyr hvort hann sé með eitthvað hlutverk. Arnar viðurkennir að það sé líklega ekki svo í fyrri leiknum en kannski í þeim seinni. Albert útskýrir þá sína stöðu með félagsliði og fjölskyldu þar sem hann á mánaðargamalt barn sem hann hefur bara hitt í hálfan sólarhring og tveggja ára gamlan strák. Hann myndi frekar forgangsraða því í þetta skiptið."

Albert væri þá ekki tilbúinn að koma ef hann væri með ekkert hlutverk þar sem hann er nýbúinn að eignast barn með kærustu sinni, en fjölskylda hans hefur verið heima á Íslandi og því Albert lítið getað hitt hana þar sem hann er á fullu í ítalska fótboltanum.

„Það virtist vera skilningur á því frá þjálfaranum sem segir við Albert að hann ætli að vinna þetta vel með fjölmiðlafulltrúa. Hvað gerir Arnar þá? Hann segir að Albert sé ekki tilbúinn að vera í liðinu á forsendum liðsins, að hann vilji bara vera í hópnum ef hann byrjar. Það er ekki rétt. Það eru ekki forsendur Alberts."

„Þarna hafði landsliðsþjálfarinn tækifæri á að segja að Albert væri ekki með af fjölskylduástæðum en aftur er hann að ráðast á persónuna, setur út á hann sem liðsmann og hann sem landsliðsmann. Þetta er í annað skipti sem hann hendir leikmanninum undir rútuna. Hann virðist vera að búa til umhverfi þar sem hann þarf ekki að velja Albert og lætur öll spjót beinast að honum."

Albert telur að Arnar vilji einfaldlega ekki hafa Albert í sínum hóp og sé að reyna að forðast pressuna sem hefur skapast vegna þess.

„Hann veit að forsendur Alberts eru aðallega fjölskyldan, hann veit það. Hann missti af fæðingu barns síns. Hann hugsar: 'Ég er í mikilli baráttu með Genoa. Er ég að fara í tíu daga þar sem ég er í engu hlutverki og æfa virkilega lítið eins og landsliðsverkefni eru?' Þegar ég hitti Albert þá sagði hann mér að símtalið hefði gengið vel. En mér finnst staðan þannig að Arnar vill ekki nota hann og ég held að Albert vilji ekki spila undir hans stjórn. Fyrir mitt leyti er það staða sem Arnar bjó til."

„Sem þjálfari á hann að geta verið með hóp af mismunandi persónuleikum og tæklað þá. Hvor er búinn að vera faglegri í þessu? Leikmaðurinn sem hefur ekkert tjáð sig eða þjálfarinn sem setur út á hugarfar leikmanns opinberlega og lætur ekkert fylgja með."

Ég held að Arnar fíli ekki persónuna
Albert hélt áfram en hann telur að Arnar sé ekki hrifinn af persónuleika Alberts.

„Leikmaður er að setjast niður með þjálfara og segir að hann muni nýtast betur ef hann fær að fara miðsvæðið. Arnar vill hafa kantmennina sína út við línu. Að svarið sé að þú lítir of stórt á þig og þú sért of góður með þig... ég hef sagt það áður en ég held að Arnar fíli ekki persónuna. Albert er krefjandi, hann er ekki já-maður og er með skoðanir. Menn með skoðanir hafa ekki fengið að lifa lengi í landsliðinu."

„Albert finnur sig best í holunni. Hann er tekinn fyrir á fundi því hann fer inn á völlinn sem kantari. Þá finnst mér allt í lagi að fara á fund og spyrja: 'Ef ég má ekki gera það, er séns að fá tækifæri á miðjunni?'"

„Ég fullyrði að persónan Albert Guðmundsson er persóna sem Arnar vill ekki hafa í sínum hóp. Hann var pressaður út af frammistöðu Alberts með Genoa til að hringja í hann, en honum langaði ekkert að hafa hann þarna."

Albert hélt áfram og sagði:

„Í marga mánuði er landsliðsþjálfarinn búinn að setja út á hugarfar leikmanns án þess að láta nokkuð fylgja með. Hann er líka búinn að setja út á hans heiður sem landsliðsmanns. Hvernig geta samræður á milli leikmanns og landsliðsþjálfara ekki bara verið á milli þeirra?"

„Hann spurði aldrei hvort hann væri að fara að byrja, hann þurfti bara að vita hvort hann yrði í einhvers konar hlutverki þar sem hann er ekki búinn að hitta nýfætt barn sitt í meira en hálfan sólarhring. Það getur líka spilað inn í hvernig síðustu mánuðir hafa rúllað, hvernig Arnar hefur sett út á hans hugarfar og hann sem atvinnumann. Þessir fundir, það er búið að taka hann tvisvar sinnum fyrir. Það er búið að klippa myndband af honum á æfingu þegar Arnar veit nákvæmlega af hverju hann var pirraður á æfingunni. Hann gat tekið hann einn á einn og spjallað við hann. Hann þurfti ekki að sýna öllum hópnum, þeir vissu ekkert hvað hafði gerst áður."

Albert Brynjar segir að sér og fjölskyldunni sé sama hvort að Albert sé í hópnum eða ekki, þau séu hins vegar ósátt við að ráðist sé á persónu hans.

„Ég sit ekki hérna og segi að Albert eigi að vera í byrjunarliðinu eða að það eigi að byggja liðið í kringum hann. En ef hann er ekki í hópnum, þá er algjör óþarfi að fara út í persónuna. Það er það eina sem við biðjum um," sagði Albert Brynjar þá í þættinum.

Hér fyrir neðan má sjá viðtal við landsliðsþjálfarann sem var tekið í gær - þar sem hann var spurður út í fjarveru Alberts.
Arnar segir Albert ekki hafa viljað vera á bekknum
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner