Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 17. júní 2019 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ísak Óli til SönderjyskE (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danska úrvalsdeildarliðið SönderjyskE er búið að kaupa varnarmanninn efnilega Ísak Óla Ólafsson frá Keflavík.

Ísak Óli er 18 ára gamall og hefur verið lykilmaður í liði Keflavíkur undanfarin ár þrátt fyrir ungan aldur. Hann er fæddur 2000 og hefur verið fastamaður í byrjunarliðinu síðan sumarið 2017.

Ísak á 17 leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands og var nýverið valinn í U21 landsliðið. Hann hefur verið fyrirliði Keflavíkur í sumar og mun leika fyrir félagið þar til 23. ágúst.

„Við erum mjög ánægð fyrir hönd Ísaks með þessi vistaskipti og óskum honum alls hins besta. Hann mun skilja eftir sig stórt skarð í liðinu," sagði Sigurður Garðarsson, formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur.

„ Við vorum mjög ánægð með þau samskipti sem við áttum við Sönderjyske og teljum að samkomulagið sé sanngjarnt fyrir alla aðila. Við erum með öflugt yngri flokka starf sem sést vel á fjölda fyrrverandi Keflvíkinga sem eru virkir í atvinnumennsku og standa sig vel.

„Það er einfaldlega sá veruleiki sem við og flest önnur íslensk lið búum við að efnilegustu leikmennirnir vilja reyna sig á stærra sviði. Við fögnum því að sjálfsögðu og erum alltaf tilbúnir til að greiða götu okkar leikmanna að því gefnu að aðilar séu sammála um verðmat á leikmanninum."

Athugasemdir
banner
banner
banner