Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 17. júlí 2021 06:00
Victor Pálsson
Mahrez segist vera kominn á toppinn
Mynd: Getty Images
Riyad Mahrez telur að hann sé kominn á toppinn í fótboltanum eftir að hafa samið við Manchester City.

Þetta sagði Mahrez við YouTube rásina Oui Hustle en hann var spurður hvort hann gæti reynt að semja við annað stórlið í framtíðinni.

Það er ekki á dagskrá vængmannsins sem telur enska stórliðið vera hátind ferilsins.

„Hvað ef ég vil komast lengra á ferlinum? Ég sé ekki hvað er hærra en Manchester City," sagði Mahrez.

„Að reyna aðra deild? Nei. Ég elska England og enskur fótbolti er frábær. Ég vil ekki fara. Ég er enn með markmið hérna."

„Þegar þú sérð að Pep Guardiola vill fá þig þá er það mikill heiður. Allir vita að okkar samband í dag er mjög gott."
Athugasemdir
banner
banner